Jarðvegsvinna
Við sérhæfum okkur í jarðvegsvinnu, þar á meðal lóðaframkvæmdum, vegagerð, jarðvegsskipti og fleygun.
GB Mokstur veitir alhliða jarðvegsvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Suðurlandi. Við tökum að okkur lóðaframkvæmdir, vegagerð, jarðvegsskipti, fleygun, niðursetningu rotþróa og jarðvegslagna.
Með öflugum tækjabúnaði og fagmennsku tryggjum við vandaða og skilvirka framkvæmd. Einnig bjóðum við upp á útvegun jarðvegsefna í samstarfi við trausta flutningsaðila.
Við tökum að okkur jarðvinnu af öllum stærðum og gerðum – fagleg, skilvirk og áreiðanleg þjónusta. Hafðu samband í dag og fáðu tilboð!